Ég hef aðeins skoðað það sem þessi maður, Dr. Stuart Brown, hefur verið að rannsaka og nýlega gaf hann út bók sem fjallar um mikilvægi leiks i lífinu öllu. Ég er mjög heilluð af skrifum hans og tel sjálf að það sé mikilvægt að hætta aldrei að leika sér, sama hver aldurinn er. Mæli virkilega með að hlusta á þennan fyrirlestur, pæla svo aðeins í sjálfum sér i framhaldinu og velta fyrir sér hvort að leikurinn í þér hafi nokkuð glatast samhliða komu fullorðinsáranna :)
Íslenskar brotthvarfsrannsóknir sýna flestar að skólakerfið þurfi að sníða betur að þörfum hvers og eins. Í ritgerðinni er skoðað hvaða augum endurkomunemendur líta á fyrra brotthvarf, hvernig aðstæður og líf þeirra var á þeim tíma og hvernig þeim gengur að glíma við námið eftir 25 ára aldur í annarri tilraun, samanborið við fyrstu tilraun.
Hérna er ég með áhugaverðan einstakling sem er þekktur í heimi fullorðinsfræðslunnar. Það sem hann hefur unnið með (aðeins brot) er t.d: „Critical thining" og „samræðumeðferð". Inni á síðunni er að finna svona sitt lítið af hverju sem er gaman að skoða ef manni leiðist.
Uppt0kur af fyrirlestrum um námsmat, vurdering for læring/assesment for learning. Hef horft á fyrirlestra Gordons Stobart, hann fjallar um það hvernig og hvers vegna við ættum að virkja nemendur í eigin námsmati. Hvernig markmið námskeiðs eða verkefnis þurfa að vera skýr fyrir nemandann og um tengingu námsmats og markmiða.
Mér finnst þetta óhjákvæmilega tengjast okkar námi og mörgum einstaklingum sem nýta sér fullorðinsfræðslu. Þ.e. þeir sem koma aftur í nám eftir brotthvarf. Hvernig hugsa þeir? Hvaða reynslu hafa þeir af námi? Af hverju létu þeir sig hverfa?
Einmitt Sæunn. Markhópur FA, og þar með einn af markhópum símenntunarmiðstöðvanna er þessi hópur: fólk sem hefur hætt í framhaldsskólanámi, en vill svo snúa aftur í nám.
Í markaðsfræðinámskeiðinu eru þau að kíkja á svona efni líka: http://markadssetning.namfullordinna.is/2012/09/27/aftur-i-nam/#comments