Ef til vill hafið þið líka áhuga á að skoða fleirri erindi frá ráðstefnunni. John Moravec var t.d. á fundi á námskeiðinu FNA hjá okkur fyrir jól Sjá líka http://www.whosecrazyidea.nl/
Sum ykkar tókuð eftir því í haust að ég hélt fyrirlestur og verkstæði í Hollandi um "Lifelong University". http://www.whosecrazyidea.nl/ . Þar var þessi maður með einn aðal fyrirlesturinn. Hann er að tala um ástandið í heiminum í dag í tengslum við háskólanám og kennslu. ==> EN hann fór yfir þetta hnattvæðingaryfirlit sem svo margir eru að tala um þessa dagana, og ég nefndi við ykkur... 1. 2. og 3...... hnattvæðingin ;-)
Þetta á erindi til ykkar á SFFF ef þið viljið hlusta á einn fyrlrlestur um hnattvæðingu og nám (í þessu tilfelli háskóla). En fyrirlesturinn er aðallega um ástandið í heiminum, og hlutverk háskólans í því samhengi. Fullorðinsfræðslan hefur ýmis svipuð hlutverk og háskóli, stundum ER háskólakennsla fullorðinsfræðsla ;-)
Á þessari síðu er sagt frá áætlun OECD að mæla færni fullorðinna, á svipaðan hátt og þeir gera með PISA könnun meðal barna. Á undirsíðum má finna skýrslur sem kafa aðeins dýpra inn á tiltekin svið þekkingar og færni. Þetta má sjá sem bakrgrunn og hluta af pælingunum um hæfni og færni...
Greining menntunarþarfa1 hefur frá upphafi verið ein af grunnstoðunum í starfsemi Fræðslumiðstöðvar
atvinnulífsins (FA) og á slíkum greiningum byggist námshönnun og námsskrárritun.
Í fyrsta þjónustusamningi FA og mennta- og menningarmálaráðuneytisins er kveðið
á um að Fræðslumiðstöðin eigi að „skilgreina menntunarþarfir markhópa og byggja upp
framboð á lengra og styttra námi til að mæta þeim þörfum„ (Þjónustusamningur milli FA og
mrn, apríl 2003) og hafa ákvæði þessu lík verið í öllum þjónustusamningum þessara aðila
síðan.
Var að velta fyrir mér hvernig maður auglýsir námskeið þannig að það verði grípandi og áhugavert við fyrsta lestur. Hvernig nær maður fólki til þess að koma á námskeið til mín!
Menntun ræður mestu um hvort þér býðst örugg og áhugaverð atvinna. Hjá Mími eru margar leiðir sem greiða þér leið í framhaldsskóla og undirbúningsdeildir háskóla eða mennta þig fyrir ákveðin starfssvið. Hægt er að stunda dagnám, kvöldnám og dreifnám. Skoðaðu úrvalið og fáðu frekari upplýsingar hjá okkur.