Mér sýnist þetta vera ókeypis forrit sem hjálpar til við að útbúa markmið (reyndar bara á ensku). Þetta virkar flott að sjá og alveg þess virði að prufa sig áfram með. Forritið byggir á Bloom.
Allir háskólar á Íslandi standa nú frammi fyrir niðurskurði og aukinni samkeppni
um nemendur. Til að mæta því hafa skólarnir farið ýmsar leiðir. Á vormisseri 2011
var ákveðið að gera tilraun í Háskólanum á Akureyri með því að kenna þrjú námskeið
með mesta mögulegum sveigjanleika hvað varðar stund og stað fyrir sem
flesta nema í stað þess að líta á námið annað hvort sem fjarnám eða staðnám. Í
greininni er kynnt rannsókn sem gerð var meðal nemenda í einu þessara námskeiða
að námskeiði loknu. Markmið rannsóknarinnar var að kanna reynslu nemendanna
af því að stunda háskólanám með þessum hætti. Niðurstaðan var að
nemendurnir voru ánægðir með tilhögun námskeiðsins, skipulag og innihald. Þeim
fannst námskeiðið krefjandi en áhugavert og töldu sig hafa lært mikið.
Hér má finna nokkur önnur flokkunarkerfi fyrir hæfni fólks sem má nota við skipulagningu kennslu og kennsluna sjálfa.
Fyrsta dæmið virðist við fyrstu skoðun henta vel fyrir fullorðna.
Hér eru leiðbeiningar Guðrúnar Geirsdóttur fyrir háskólakennara um gerð hæfniviðmiða. En hæfnivðmið - eða "Learning Outcomes" eru um margt lík s.k. atferlismarkmiðum, þar sem sá sem skipuleggur námskeið skrifar niður eins nákvæmlega og hægt er hvað það er sem væntanlegir nemendur eiga að geta gert að námi loknu.
Til viðbótar við lesefni Magers um atferlismarkmið gæti verið gagnlegt að lesa amk. textann frá Guðrúnu. Enda eru Hæfniviðmið og atferlismarkmið skild fyrirbæri.
Leiðbeiningar Önnu Guðmundsdóttur og Guðrúnar Geirsdóttur um hæfniviðmið En hæfnivðmið - eða "Learning Outcomes" eru um margt lík s.k. atferlismarkmiðum, þar sem sá sem skipuleggur námskeið skrifar niður eins nákvæmlega og hægt er hvað það er sem væntanlegir nemendur eiga að geta gert að námi loknu.
„Af þessu leiðir að eigi kennsla að vera einstaklingsmiðuð í raun, er merkingarlaust að setja námsmarkmiðin fyrirfram eftir því semkennarinn vonar, áætlar eða vill að nemandinngeti. Námsmarkmið fyrir hvern nemanda íþeim atriðum sem námskrá setur og meðþeim skynjunar- og verkleiðum sem hann þarfþjálfunar við, verða ekki ákveðin fyrirfram.Þau verða aðeins sett eftir að nemandinn hefurgert eitthvað; unnið eina æfingu svo nákvæmar,raunprófaðar tölulegar upplýsingar (tíðni) liggifyrir um færni hans og afköst." bls 93
Flott að koma með gagnrýni á námsmarkmið og hugmyndir um að það sé hægt að setja nákvæm markmið fyrir heilt námskeið með mörgum nemendum, því það er líka ljóst að nemendur fara með ólíka hluti út af námskeiðinu, allt eftir því hvaða grunn þeir hafa og hvað þeir vilja fá út úr námskeiðinu. Að maður tali ekki um það óvænta sem gerist á námskeiðinu... Hvernig höndlar maður það??? Hvað þýðir það fyrir öll flottu markmiðin okkar?