Ein af pælingunum í tengslum við markaðssetningu á vefnum er að efni sem notendur þjónustu búa til styðji við og auki viðskiptin.
sjá t.c. allt efnið sem notendur Amazon búa til og gagnast svo notendum Amazon í viðskiptum sínum við fyrirtækið. Hvaða áhrif ætli efni sem nemendur menntastofnana búa til hafi fyrir markaðssetningu þeirra?
Datt í hug að þið hefðuð gaman að þessari upptalningu, ágætis framsetning á markvissu markaðsstarfi á netinu. Þessi vefur allur sýnist mér snúast um notkun félagsmiðlanna ;-)
5. þáttur um "Self Directed Learning" segir m.a. frá hvernig einu fyrirtæki tókst að fá framúrskarandi árangur hjá starfsfólki í þjónustuveri, sem er oft akkilserahæll fyrirtækja.
Viðtal við Dan Pink, höfund bókar um hvað það er sem kveikir áhuga og veldur því að fólk sinnir starfi sínu af alúð, ágætis innlegg í pælingar um af hverju sumir veiti góða þjónustu, sem er jú eitt það mikilvægasta í markaðsstetningu
Áhugavert - Mannstu hvað bókin hans Dan heitir? Við erum einnmitt að fara af stað með námskeið í verunum okkar þar esm tekið er á samskiptum við vv, (erfiða vv) og það tengist auðvitað markaðssestningu líka
Já hún heitir Drive, ef þú smellir á þar sem stendur "Dan Pink" hérna í fyrstu færslu, við hliðina á myndinni af mér, ætti að koma mynd af höfundinum (ægilegur súkkulaðigæi :o), bókarkápunni og viðtölin við hann sem hægt er að hlusta á. Það er líka heilmikið inni á Amazon, mjög mikið af fínum reviews um bæði þessa bók og fyrri bækur hans - greinilega pínu poppað en samt ýmislegt bitastætt. Já samskiptin eru líklega yfirleitt mesta áskorunin í þessu öllu - kennslu, markaðssetningu eða undir hvaða hatti þau eru - fólk fellur sem betur fer ekki alltaf í þægilega og fyrirsjáanlega ramma :o)