Grein eftir nemendur og kennara á námskeiði um gæðastjórnun:
Það getur verið erfitt að henda reiður á gæði í starfi skóla
og annarra fræðslustofnana þar sem raunverulegur árangur
af starfinu, lærdómurinn sjálfur, verður til í samvinnu við þá
sem eiga að njóta gæðanna, þ.e. þátttakendurna. Starfsemi
fræðslustofnunar gengur út á að þátttakendur læri. Hún snýst
um að fólk, sem tekur þátt í atburðum sem eru skipulagðir
af stofnuninni, viti, skilji og geti eitthvað eftir atburðina sem
það vissi ekki og gat ekki áður, eða að það kunni og geti eitthvað
betur en áður. Það liggur í augum uppi að lítill verður
lærdómurinn án eigin vinnu þátttakenda. Þess vegna hlýtur
samstarf starfsfólks fræðslustofnunar og þátttakenda að
hafa úrslitaáhrif á árangurinn og þar með gæði námsins. Það
er til lítils ef húsnæði uppfyllir alla gæðastaðla, öll ferli eru
nákvæm, skráð og gagnsæ en þátttakendur læra ekki.