Skýrsluna um færni í atvinnulífinu er kjörið að lesa í tengslum við bakrgrunn námskeiðsins Skipulagning og framkvæmd fræðslu... Stór hluti fullorðinsfræðslu snýst um að auka færni fólks á vinnumarkaði, bæði á sérstökum námskeiðum í alls konar fræðslustofnunum en einnig innan fyrirtækja og stofnana með formlegu, óformlegu og jafnvel formlausu námi
Á þessari síðu er sagt frá áætlun OECD að mæla færni fullorðinna, á svipaðan hátt og þeir gera með PISA könnun meðal barna. Á undirsíðum má finna skýrslur sem kafa aðeins dýpra inn á tiltekin svið þekkingar og færni. Þetta má sjá sem bakrgrunn og hluta af pælingunum um hæfni og færni...