Skip to main content

Home/ Mat og Vottun/ Contents contributed and discussions participated by Melissa Auðardóttir

Contents contributed and discussions participated by Melissa Auðardóttir

1More

SJÓMENN - UPPLIFUN OG VIÐHORF GAGNVART STARFI OG NÁMI „SNORRI STURLUSON BÓK M... - 0 views

  •  
    Greinin fjallar um rannsókn á meðal undirmanna á íslenskum fiskiskipum og var hún unnin árin 2010-2011. Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun og viðhorf undirmanna á sjó gagnvart starfi sínu, námi almennt og náms- og starfsráðgjöf, sem og hvaða möguleika þeir sæju varðandi nám meðfram starfi. Viðtöl voru tekin við háseta og matsveina víðs vegar af landinu, fimm karla og eina konu, á aldrinum 22-49 ára. Þau áttu það sameiginlegt að hafa nokkra starfsreynslu á sjó, takmarkaða framhaldsmenntun og engin réttindi í sjómennsku. Niðurstöðurnar sýna að afstaða þátttakenda til starfs, náms og náms- og starfsráðgjafar mótast af flóknu samspili innri og ytri áhrifsþátta. Tilgangur starfsins tengdist mikið tekjum og fyrirvinnukvöð. Starfsánægja var takmörkuð og fundu menn fyrir óþægilegu valdaleysi í oft harðsnúnu starfsumhverfi sem getur dregið úr löngun til náms og ráðgjafar. Tiltekin starfsáhugasvið og karlmennskuhugmyndir mótuðu einnig afstöðu þátttakenda. Hugsað var stutt fram í tímann og lítið fór fyrir framtíðaráætlunum í starfi. Fyrri námsreynsla gat hindrað mögulegt framhaldsnám og höfðu námsörðugleikar og jafnvel félagsleg mismunun þar sitt að segja. Þá hafði meirihluti þátttakenda takmarkaða þekkingu á námsmöguleikum og náms- og starfsráðgjafar. Þeir töldu þó að ýmsir möguleikar væru á að stunda nám með sjómannsstarfi. Stuðningur hagsmunaaðila skipti miklu máli, en forsendan væri að sjómenn sæju tilganginn með námi. Raunfærnimat gæti verið kostur sem myndi hvetja sjómenn til náms.
1More

MAT Á RAUNÆRNI Í HLJÓÐI, miðsmunandi sjónarhorn: Fjóla María Lárusdóttir. - 0 views

  •  
    Verkefnið Viðurkenning á gildi starfa (The Recognition of the Value of Work), REVOW, er yfirfærsluverkefni sem byggist á tilraunaverkefninu Gildi starfa (The Value of work), VOW. Samstarfslönd í verkefninu voru Danmörk, Grikkland og Írland. Meginmarkmið REVOW-verkefnisins er að þróa áfram aðferðir til að meta og viðurkenna þá faglegu færni og þekkingu sem einstaklingar öðlast í starfi sínu í gegnum óformlegt og formlaust nám. Þá var unnið að því að tengja færniviðmið tilraunaverkefnanna í hverju landi fyrir sig við innlenda viðmiðaramma um menntun sem og evrópska við- miðarammann um ævinám. Innlendir viðmiðarammar ganga út á að flokka menntun í hverju landi út frá færniviðmiðum sem sett eru fram sem lærdómsviðmið og setja það jafnframt á þrep í samræmi við evrópska viðmiðarammanum um ævinám. Evrópski viðmiðaramminn hefur það hlutverk að vera leiðbeinandi við þrepaskiptingu og þýða niðurstöður náms á milli landa. Með því að tengja raunfærnimat á faglegri færni þátttakenda við ofangreinda viðmiðaramma opnast þeim fleiri möguleikar til áframhaldandi færniuppbyggingar. Vottun á færni í þessu samhengi gefur einstaklingum einnig tækifæri til að styrkja faglega stöðu sína á vinnumarkaði. Samtals fóru 85 einstaklingar í gegnum raunfærnimat í verkefninu, þar af 24 hér á landi í hljóðvinnslu, 17 í umönnun (Danmörk), 19 í bílaviðgerðum (Grikkland) og 25 í lánaþjónustu (Írland). Lokaráðstefna REVOW var haldin í Kaupmannahöfn 7. október 2011. Þar mættu 52 aðilar frá 6 löndum til að fara yfir aðferðafræði og niðurstöður verkefnisins. Unnið var í vinnustofum að því að koma á og undirbúa raunfærnimat fyrir færni í starfi, skilgreiningu færniviðmiða fyrir sérstök störf, tengingu færniviðmiða starfa og hlutverk ráðgjafar og stuðnings í raunfærnimatsferlinu. Þá kom fram á ráðstefnunni að me
1More

NÁMS - OG STARFSRÁÐGJÖF VIÐ FULLORÐNA: Ísland í samanburði við hin Norðurlöndin - 1 views

  •  
    Í greininni er sagt frá niðurstöðum rannsóknarinnar sem gerð var 2010 og 2011 um stöðu náms- og starfsráðgjafar hér á Íslandi, ásamt því að skoða samanburð meðal notenda náms- og starfsráðgjafar í stofnunum innan fullorðinsfræðslugeirans á fimm Norður löndum, í Danmörku og Finnlandi, á Íslandi og í Noregi og Svíþjóð. Meginmarkmið rannsóknarinnar var einkum að leggja mat á þann ávinning sem fullorðnir notendur náms- og starfsráðgjafar hafa af henni og þátttöku þeirra í þróun og uppbyggingu hennar. Niðurstöður gefa til kynna að langalgengasta tegund náms- og starfsráðgjafar feli í sér viðtöl augliti til auglitis við náms- og starfsráðgjafa. Þessi tegund ráðgjafar hefur vissulega reynst áhrifarík en aðrar aðferðir hafa einnig reynst vel, til dæmis ráðgjöf í hóp sem hefur þann kost að ná til fleira fólks í einu og nýta þannig tíma ráðgjafans betur. Til að mynda virðist algengara að kennarar sinni náms- og starfsráðgjöf í Danmörku og Finnlandi en í hinum löndunum, auk þess sem Finnland skarar fram úr þegar kemur að notkun rafrænnar upplýsingatækni í ráðgjöf. Þá er einnig athyglisvert að ýmis tækni, s.s. síma- og tölvutækni virðist vera minna notuð hér á landi í náms- og starfsráðgjöf. Notendur virðast í meiri mæli telja að ávinningurinn sé af menntunarlegum og persónulegum toga en telja sig í minni mæli hafa starfstengdan ávinning af henni. Þá gefa niðurstöðurnar einnig til kynna að ekki er hlustað nægilega vel á raddir notenda náms- og starfsráðgjafar, og hafa um þriðjungur til helmingur svarenda ekki fengið tækifæri til að gefa álit sitt á þjónustunni. Slíkt er talið miður þar sem raddir notenda er talin góð leið til að auka gæði náms- og starfsráðgjafar fyrir fullorðna. Niðurstöður norrænu rannsóknarinnar gefa til kynna að margt sé vel gert í náms- og starfsráðgjöf fyrir
1More

FRÉTTIR AF ÞRÓUN NÁMS- OG STARFSRÁÐGJAFAR Í FRAMHALDSFRÆÐSLU - 0 views

  •  
    Í upphafi árs 2011 voru tölur frá ári áður teknar saman og hafði þá viðtölum í náms- go starfsráðgjöf í framhaldsfræðslu fjölgað um rúm 4.000 á milli ára, úr 6.767 í 10.799. Það skýrist að einhverju leyti af hópráðgjöf einnig af aukningu atvinnuleitenda sem koma í ráðgjöf hjá fræðslu- og símenntunarmiðstöðvum vegna samstarfs við Vinnumálastofnun. Þá eru karlar í meirihluta, eða um 57%, en fleiri karlmenn eru einnig á skrá VMST en konur. Lögð var áhersla á gerð skimunarlista sem styðjast mætti við í viðtölum við atvinnuleitendur og aðra notendur þjónustunnar og unnið var eyðublað fyrir upplýst samþykki notenda varðandi ramma þjónustunnar. Unnir voru tveir gátlistar til að efla samræmi og gæði í raunfærnimati, greina þarfir markhópsins og draga betur fram raddir notenda í þjónustunni. Þeir gátlistar eru; Gátlisti fyrir náms- og starfsráðgjafa í raunfærnimati og Gátlisti fyrir verkefnisstjóra í raunfærnimati. Í Gátlista fyrir náms- og starfsráðgjafa í raunfærnimati eru dregnir fram verkþættir ráðgjafans í ferlinu. Í Gátlista fyrir verkefnisstjóra eru dregnir fram verkþættir. Þá hafa verkefnisstjórar sem hafa sinnt raunfærnimati innan framhaldsfræðslunnar hafa flestir verið náms- og starfsráðgjafar.
1 - 4 of 4
Showing 20 items per page