Skip to main content

Home/ Mat og Vottun/ Group items tagged Rannsókn

Rss Feed Group items tagged

1More

AÐ STÍGA SKREFIÐ - í nám á nýjan leik að loknu raunfærnimati: Auður Sigurðard... - 1 views

  •  
    Rannsókn á upplifun einstaklinga sem fóru í raunfærnimat eftir brotthvarf úr námi í framhaldsskóla og hófu nám á nýjan leik. Rannsóknin var unnin í meistaranámi í náms og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands 2008-2010 og verða hér viðraðar helstu niðurstöður.
1More

EN HALLÓ ÉG HEF BARA HELLING: Rannsókn um upplifun bankastarfsmanna af raunfæ... - 0 views

  •  
    "Hér er fjallað um upplifun átta einstaklinga af raunfærnimati fyrir starfsfólk fjármálafyrirtækja og kastljósi beint að því hvort að það hafi skilað þeim árangri að vera liður í starfsþróun. Rannsóknin er liður í meistaranámi í náms- og starfsráðgjöf við Háskóla Íslands og verða hér kynntar helstu niðurstöður hennar"
1More

SJÓMENN - UPPLIFUN OG VIÐHORF GAGNVART STARFI OG NÁMI „SNORRI STURLUSON BÓK M... - 0 views

  •  
    Greinin fjallar um rannsókn á meðal undirmanna á íslenskum fiskiskipum og var hún unnin árin 2010-2011. Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun og viðhorf undirmanna á sjó gagnvart starfi sínu, námi almennt og náms- og starfsráðgjöf, sem og hvaða möguleika þeir sæju varðandi nám meðfram starfi. Viðtöl voru tekin við háseta og matsveina víðs vegar af landinu, fimm karla og eina konu, á aldrinum 22-49 ára. Þau áttu það sameiginlegt að hafa nokkra starfsreynslu á sjó, takmarkaða framhaldsmenntun og engin réttindi í sjómennsku. Niðurstöðurnar sýna að afstaða þátttakenda til starfs, náms og náms- og starfsráðgjafar mótast af flóknu samspili innri og ytri áhrifsþátta. Tilgangur starfsins tengdist mikið tekjum og fyrirvinnukvöð. Starfsánægja var takmörkuð og fundu menn fyrir óþægilegu valdaleysi í oft harðsnúnu starfsumhverfi sem getur dregið úr löngun til náms og ráðgjafar. Tiltekin starfsáhugasvið og karlmennskuhugmyndir mótuðu einnig afstöðu þátttakenda. Hugsað var stutt fram í tímann og lítið fór fyrir framtíðaráætlunum í starfi. Fyrri námsreynsla gat hindrað mögulegt framhaldsnám og höfðu námsörðugleikar og jafnvel félagsleg mismunun þar sitt að segja. Þá hafði meirihluti þátttakenda takmarkaða þekkingu á námsmöguleikum og náms- og starfsráðgjafar. Þeir töldu þó að ýmsir möguleikar væru á að stunda nám með sjómannsstarfi. Stuðningur hagsmunaaðila skipti miklu máli, en forsendan væri að sjómenn sæju tilganginn með námi. Raunfærnimat gæti verið kostur sem myndi hvetja sjómenn til náms.
1More

RAUNFÆRNIMAT Í VERSLUNARFAGNÁMI: Reynsla af verkefninu - 0 views

  •  
    Raunfærnimat hefur þróast töluvert á undanförnum árum og sífellt er unnið að innleiðingu þess í fleiri starfsgreinum. Ein af þeim greinum sem bæst hefur í flóruna nýlega er raunfærnimat fyrir einstaklinga með reynslu af verslunarstörfum. Í þessari grein verður fjallað um raunfærnimat í verslunarfagnámi hjá Mími-símenntun. Fjallað verður um upphaf verkefnisins sem og reynslu af ferlinu með tveimur hópum sem fóru í gegnum raunfærnimatið á þessu ári.
1 - 4 of 4
Showing 20 items per page