FORMLEGT NÁM AÐ LOKNU RAUNFÆRNIMATI: Hildur Elín Vignir og Iðunn Kjartansdóttir - 0 views
-
Kristín Þórarinsdóttir on 14 Mar 15Raunfærnimati hefur verið vel tekið innan sviða IÐUNNAR fræðsluseturs. Þátttakendur eru hvattir til að hefja nám innan formlega skólakerfisins að matinu loknu og hefur þriðjungur þátttakenda lokið sveinsprófi eða lokaprófi í sínu fagi. En hvernig nálgumst við hina sem eftir eru? Hvað kemur í veg fyrir að sá hópur stígi stóra skrefið og fari í nám? Starf náms- og starfsráðgjafanna er lykilatriði í að árangur náist að raunfærnimati loknu. Það er hvatningin, stuðningurinn og aðstoðin við að skipuleggja næstu skref sem skiptir mestu máli. Góður árangur þátttakenda í raunfærnimati kom í ljós við afhendingu sveinsbréfa haustið 2011 þegar fjórir þeirra hlutu hæstu einkunn á sveinsprófi í sinni iðngrein.